Einfaldur kjúklingur með brokkoli
1 meðalstór kjúklingur
1 tsk karrý
4 msk majónes
1 dós sveppasúpa
1 poki frosið brokkoli eða ferskt
rifinn ostur ofan á
Sjóðið kjúklinginn. Hrærið saman majónesi, karrý og sveppasúpu. Sjóðið brokkoli.
Setjið brokkoli í eldfast mót, brytjið kjúklinginn og setjið hann ofan á ,
hellið sveppablöndunni ofan á að lokum stráið rifnum osti yfir.Setjið í 180 -
200°heitan ofn og eldið þangað til osturinn hefur bráðnað og tekið á sig
fallegan lit.
Einnig er gott að skella hrísgrjónum með í réttinn.
