Einfaldur kjúklingaréttur
Innihald:
Uppáhaldsgrænmetið
Kjúklingur
Kús kús
AB mjólk
Agúrka
Hvítlaukur
Balsamedik, þunnfljótandi – ekki sykurleðjan.
Notast er við stórt djúpt ofnfat. Ekki loka fatinu ef þið viljið hafa réttinn
stökkan.
Í botninn á fatinu má setja hvaða grænmeti sem er - en best er það grænmeti sem
verður sætt við eldun: Rauðlaukur, rauð paprika, sæt kartafla, venjulegar
kartöflur, gulrætur, brokkolí og heilir hvítlauksgeirar.
Sirka einn heill laukur. Allt er þetta gróft skorið og raðað í botninn.
Setjið slettur af balsamediki á víð og dreif.
Heill kjúklingur settur ofan á grænmetið.
Kryddið með kjúklingakryddi og slettið balsamedikinu yfir hann líka til að búa
til dökka skorpu.
Fatið sett í ofninn við 200° C í sirka klukkutíma.
Meðlæti sem má búa til áður en gestirnir koma:
Kús kús og tsatsiki-sósa sem er bara ab-mjólk, hvítlaukur og rifin gúrka í skál.
Ef margir eru í mat má vel hafa ferskt salat með, en það á að vera nóg grænmeti
í botninum á fatinu.
Muna að það þarf ekki að setja vatn eða annað í botninn á fatinu því safinn af
kjúklingnum sýður grænmetið og viti menn, bragðið er töfrum líkast.