Chilli-, engifer- og hvítlauksmarineraðar
kjúklingabringur.
3 cm ferskur engifer
2 geirar hvítlaukur
1 stk. rauður chilli-pipar
1 stk. lime
6 msk. kikkoman-sojasósa
4 stk. kjúklingabringur
Aðferð:
Hreinsið skinnið af engiferinu og hvítlauknum.
Saxið chilli-piparinn gróft niður.
Rífið börkinn af lime með beittu rifjárni.
Setjið engifer, hvítlauk, rauðan chilli og lime-börk saman í matvinnsluvél ásamt
sojasósunni og maukið gróft.
Setjið plastpoka ofan í stóra skál og brettið pokann yfir barmana á skálinni,
setjið kjúklingabringurnar ofan í pokann og hellið maukblöndunni þar yfir,
bindið fyrir pokann og blandið
öllu vel saman. Setjið pokann aftur í skálina, látið standa í kæli í 2–3 tíma.
Ofnbakið kjúklingabringurnar fyrst á 180° C í 5 mínútur og lækkið svo hitan
niður í 120° C og eldið þar til að bringurnar hafa náð 68° C í kjarna í 3 mín.
Kjúklingabringurnar eru líka framúrskarandi góðar þegar þær eru grillaðar.
Borið fram á soja „vinaigrette“ vættu klettasalati með hýðishrísgrjónum og
nýbökuðu nan-brauði.