Chilikjúklingur 2

1 heill kjúklingur
4 rauð chili
2 bollar ólífuolía
sjávarsalt
1 lime eða sítróna
grænmeti eftir smekk

Skinnið tekið af kjúklingnum, og hann lagður á magann í eldfast mót. Vel af góðri ólífuolíu hellt yfir hann, 2 bolli á hvora hlið.
Kjúklingurinn þakinn með góðu sjávarsalti og helmingnum af ferska saxaða chilipiparnum. Takið fræin ekki úr piparnum. Kjúklingnum snúið við og leikurinn endurtekinn. Bútið lime eða sítrónu í 2-3 hluta, setjið inn í kjúklinginn.
Gott er að láta grænmeti fljóta með í fatið, t.d. rauðlauk, brokkólíhaus eða sætar kartöflur. Dreypið olíu yfir það líka.

Hitið ofninn í botn meðan á undirbúningi stendur. Setjið kjúklinginn inn með álpappír yfir og lækkið í 180 gráður. Hafið álpappírinn yfir í hálftíma, fjarlægið hann, en haldið áfram að elda kjúklinginn í þrjú korter til klukkutíma.
Berið fram með kúskús eða hrísgrjónum og fersku salati.