4 Kjúklingabringur
Ferskir
sveppir u.þ.b. einn kassi
camenbertostur
rjómi
Búið til vasa úr bringunni og setjið ostinn inní.Skerið sveppina niður.Kryddið
kjúklinginn með season all. Hitið pönnuna vel og steikið þannig að hann verði
fallega brúnn . Steikið sveppina og setjið með kjúklingnum. Hellið síðan
rjómanum yfir og látið krauma þar til tilbúið.
Einnig má bragðbæta bringurnar með því að vefja beikoni utan um þær.
