Cajun kjúklingur með
appelsínu-sinnep sósu
4 skinnlausar kjúklingabringur skornar í tvennt
½ tsk svartur pipar
½ tsk timian
1 tsk paprikuduft
¼ tsk salt
1 tsk hvítur pipar
2 msk matarolía
1 tsk laukduft
1 tsk hvítlauksduft
1 tsk cayenne pipar
1 tsk basil
Bankið kjúklingabringurnar
mjúklega, þangað til þær eru u.þ.b. 1 ½ sm að þykkt. Blandið saman í skál Cajun
kryddblöndunni með því að blanda saman paprikuduftinu,hvíta piparnum,
laukduftinu, hvítlauksduftinu, cayenne piparnum, basil, svörtum pipar, timian og
salti.
Kryddið kjúklingabringurnar með blöndunni og látið standa í ísskáp í 30 mínútur.
Setjið olíuna á meðalheita
pönnu. Bætið kjúklingabringunum við og brúnið í u.þ.b. 5 –6 mínútur eða þangað
til að hægt er að stinga þær auðveldlega með gaffli.
Bætið appelsínu-sinneps sósunni á pönnuna og hækkið hitann þangað til sósan
byrjar að sjóða. Berið fram með hrísgrjónum.
Appelsínu-sinneps
sósa
Blandið saman í potti 1 ½ bolla appelsínu marmelaði og 6 msk af Dijon sinnepi.
Látið malla á lágum hita, hrærið af og til þangað til allt hefur bráðnað vel
saman.
