Brjálæðislega auðveldur kjúlli
2½ dl rjómi
1 msk kálfakraftur frá Fond
1 msk Dijon sinnep
2 tsk estragoni, þurrkað
2 tsk bernesessens
4 stk kjúklingabringur án skinns
Matreiðsla
Steikið bringurnar á pönnu saltið og piprið eftir smekk. Takið bringurnar af pönnunni hellið rjómanum út á pönnuna og látið restina af hráefninu út í. Setjið síðan bringurnar aftur út á sósuna á pönnunni og látið sjóða við vægan hita uns kjúklingurinn er fulleldaður. Nammi namm!
Þetta er borið fram með fersku salati og hrísgrjónum.