Bjórdollu kjúklingur
1 kjúklingur, meðalstór
3 msk kryddblanda, eða eftir þörfum
1 bjórdós (330 ml)

Í stuttu máli, maður tekur kjúkling og bjórdós,
kryddar kjúklinginn, drekkur
smávegis af bjórnum, treður svo opinni dósinni upp í óæðri endann á
kjúklingnum, setur hann svo uppréttan á heitt grillið, lokar og grillar við
óbeinan hita í 1 1/2-2 klukkutíma. Kjúklingurinn grillast að utan án þess að
brenna og soðnar svo innan frá í bjórgufunum = einkar meyr og góður
kjúklingur. Það stendur allavega í uppskriftinni og þannig varð hann hjá
mér. Einn kosturinn er að bringan er ögn fjær hitanum en lærin og þar sem
hún þarf styttri tíma er minni hætta á að hún verði ofsteikt og þurr áður en
lærin eru steikt í gegn.
Kryddið getur í sjálfu sér verið hvað sem er en ég mæli með einhvers konar
chilikryddblöndu. Ég veit ekki alveg hvað er í blöndunni sem ég notaði því
hún mun hafa verið keypt á kryddmarkaði í Durban í Suður-Afríku og var
blönduð á staðnum en þetta var rauðleit indversk kryddblanda, meðalsterk.
Það mætti líka nota einhvers konar Memphis-kryddblöndu (4 msk paprika, 1-3
tsk cayennepipar, 1 msk púðursykur, 1 msk sykur, 1 tsk hvítlauksduft, 1 tsk
steytt mustarðskorn (sinnepsfræ), pipar, salt). Eða tilbúna chiliblöndu.
Kjúklingurinn þerraður vel og 1 msk af kryddi stráð innan í hann og 1 msk
núið utan á hann. Grillið hitað. Bjórdósin opnuð og u.þ.b. fjórðungur
innihaldsins drukkinn (eða hellt í vaskinn ef eintómir bindindismenn eru
viðstaddir). Nokkrar holur eru síðan gerðar í lokið með dósahníf, stórum
nagla eða öðru hentugu tæki. Síðan er afganginum af kryddblöndunni bætt út í
bjórinn og dósinni troðið upp í afturendann á kjúklingnum, þannig að aðeins
blábotninn standi út úr. Þegar grillið er orðið vel heitt er slökkt á öðrum
brennaranum og kjúklingurinn settur á grillið, þeim megin sem slökkt er, en
þó frekar nærri miðju. Hann er látinn sitja uppréttur á dósinni og lappirnar
glenntar ögn út til stuðnings. (Þetta er frekar fyndin sjón.) Grillinu
lokað, hitinn á brennaranum sem kveikt er á lækkaður dálítið, og svo er
kjúklingurinn grillaður í rólegheitum í um 1 1/2 klst eða lengur, þar til
hann er steiktur í gegn og tær safi rennur úr honum þegar stungið er í hann.
Best er að opna grillið sem minnst en snúa þó e.t.v. kjúklingum tvisvar eða
þrisvar svo að hann grillist jafnar. Þegar fuglinn er tilbúinn er hann
tekinn af grillinu (best að renna undir hann spaða og setja beint yfir á
fat, annars er hætta á að heitur bjór skvettist á mann).
Í uppskriftinni er kjúklingurinn borinn fram uppréttur á dósinni en ég lagði
ekki í að skera hann þannig, svo að ég hellti bjórnum úr dósinni og
fjarlægði hana áður en ég setti fuglinn á fat.
Þetta er auðvitað hægt að gera á kolagrilli líka, svo framarlega sem það er
lokað og lokið er nægilega hátt og kúpt til að uppréttur kjúklingur komist
fyrir. Þá setur maður bara álbakka með vatni í mitt grillið og kolin út til
hliðanna.