Beikonvafðar kjúklingabringur (þetta er ótrúlega gott)

Kjúklingabringur
Beikonbréf
(Ekkert krydd)

Kjúklingabringur skornar langsum í ca. 3 bita. Beikoni vafið utan um, gott að tylla beikoninu með tannstöngli. Grillað á útigrillinu. Alveg hægt að steikja líka eða setja í eldfastmót inn í ofn.

Sósa

1 laukur
2 hvítlauksrif
Glassera þetta á pönnu.
2 dl tómatsósa
1 dl HP sósa
sojasósa
svartur pipar
2 msk Worchestersósa
ca. 2 dl appelsínusafi
1 msk edik.
 

Allt sett út á pönnuna (pottinn) og hrært saman.

Borið fram með hverju sem er.