Balsamickjúlli

1.kg kjúklingur
1 msk estragon, ferskt
hunang til penslunar
 

Salat

1 dl brauð teningar, ristaðir
½ dl balsamic edik
2 msk tómatar, sólþurrkaðir
2 msk parmigiano ostur
1 stk avókadó
1 stk rauðlaukur
1 stk mangó
blaðsalat
ólífur, svartar
furuhnetur, ristaðar
lambhagasalat

 

Ristið furuhneturnar á heitri pönnu og stráið ögn af salti yfir. Saxið síðan estragonið og rífið ostinn (parmigiano). Skerið tómatana og rauðlaukinn smátt, en avókadóið og mangóið í bita.

Penslið kjúklinginn með hunangi og stráið fersku estragoni yfir. Steikið í ofni við 120°C í 60 mínútur. Takið kjúklinginn úr ofninum og kælið. Rífið salatið niður í stóra skál og blandið öllu saman við sem fara á í salatið. Skerið síðan kjúklingakjötið í sneiðar eða bita og bætið þeim saman við. Berið fram með góðu brauði.