Balsamedik kjúklingabringur

6 beinlausar kjúklingabringur
2 msk ólífuolía
1 stk laukur, brytjaður
Svartur pipar eftir smekk
Hvítlaukssalt eftir smekk
½ - ¾ bolli balsam edik
1 dós (u.þ.b. 14.5 oz) brytjaðir niðursoðnir tómatar
1 tsk þurrkað basilkum
1 tsk þurrt oregano
1 tsk þurrt rósmarin
1 tsk timian

Skerið bringurnar í bita og kryddið með svörtum pipar og hvítlaukssalti. Hitið ólífuolíuna á pönnu, bætið lauknum og kjúklingnum á pönnuna og brúnið saman.

Þegar kjúklingurinn er orðin ljósbrúnn, bætið saman við edikinu, tómötunum, basilkum, oregano, rósmarin og timian. Látið malla saman þangað til tilbúið (u.þ.b. 10 mín)