Bakaður kjúklingaréttur
1 stór kjúklingur (soðinn í
saltvatni og kældur)
1 dós Campells sveppasúpa
2 pokar hrísgrjón, soðin
2-3 lauf saxaður hvítlaukur
1 pakki saxaðir sveppir (2-300 g) (steiktir ef vill)
1 tsk salt
2 msk hunang
smá sætt sinnep
1-2 pokar blandað frosið grænmeti,
Kartöfluflögur t.d. papriku.
Takið kjúklingakjötið af beinunum og setjið í stóra skál. Grófsaxið flögurnar og geymið 1 bolla af þeim tl að strá yfir réttinn. Blandið öllu öðru saman og setjið í eldfast mót, hrísgrjónin neðst. Stráið flögunum yfir og bakið við 200 gráður í 15-20 mínútur. Berið fram heitt með salati og hvítlauksbrauði.