Baka með kjúklingi, sveppum og osti
200 g hveiti
150 g rjómaostur
½ dl vatn
Sett í matvinnsluvél og hrært þar til deigið hleypur í kúlur.
250 g sveppir, skornir í bita
2 væn hvítlauksrif
olía til steikingar
væn lúka af spínati og klettasalati
1 dós sýrður rjómi
1 dl rjómi
4 egg
150 g rifinn ostur
100 g gráðaostur
300 g steiktur kjúklingur, skorinn í smáa bita
pipar úr kvörn
Maldon-salt
Sveppir léttsteiktir, með hvítlauk, pipar og salti. Takið af hita og spínati og
klettasalati bætt söxuðu saman við. Sýrðum rjóma,
rjóma og eggi blandað saman. Öllu blandað saman og hellt yfir bökubotninn sem
búið er að setja í eldfast form. Gráðaosturinn
mulinn yfir og rifinn ostur settur á. Bakað í 40 til 45 mínútur við 180 gráður.
Brokkólísalat
6 bollar hrátt brokkólí, búið að klippa blómin smátt af stilkum
350 g stökksteikt beikon, skorið í bita
1 bolli saxaðar rúsínur
½ bolli smátt saxaður rauðlaukur
Öllu blandað saman.
Dressing
1 bolli majónes og sýrður rjómi til helminga
4 msk. edik
3 msk. sykur
Öllu hrært saman og blandað við salatið.