300 gr kjúklingabringur
2 msk.
sojasósa
25 gr
smjör til steikingar
1
meðalstór gulrót
125 gr
broccoli
125 gr
agúrka
2-3
blaðsellerístilkar
1/2 dl
sojasósa
1-2 tsk.
hunang
Sítrónusafi
Fjarlægið skinn og bein (ef eru) af kjúklingabringunum og skerið kjötið í
strimla. Steikið kjötið í olíu á stórri pönnu eða wok-pönnu. Snúið kjötinu oft á
meðan á steikingu stendur og dreypið á það sojasósu. Takið kjötið af pönnunni.
Skerið grænmetið í jafnstóra strimla. Steikið grænmetið í smjöri á pönnunni í
þessari röð: gulrætur fyrst, þá kemur blaðsellerí, því næst broccoli og síðast
gulrætur.
Bætið steiktum kjúklingabitum saman við grænmetið á pönnunni og hitið vel.
Bragðbætið með sojasósu og hunangi eða púðursykri.
Kreistið að lokum sítrónusafa yfir réttinn. Þetta er svo borið fram með
hrísgrjónum.
