Appelsínu- og ananas kjúklingaréttur með cashewhnetum
2 dósir lífræn jógúrt (má vera venjuleg hrein jógúrt)
safi úr einni lime
2 tsk gott karrýkrydd
4 kjúklingabringur grillaðar eða ofnbakaðar og skornar í bita. Gott að krydda
með smá karrý, sjávarsalti og pipar.
blandað salat t.d. klettasalat og kínakál
1/2 ferskur ananas
2 appelsínur, afhýddar og skornar í bita
2 lúkur ósaltaðar cashewhnetur
creme balsamic til skreytingar
Blandið saman jógúrti, limesafa og karrýduftinu. Setjið niðurskorna appelsínu,
ananas, hnetur og kjúklingabitana í skál
og hellið jógúrtblöndunni yfir. Setjið ferska salatið í fjórar skálar og
skreytið með smá slettu af creme balsamic.
Setjið kjúklingaréttinn yfir salatið og njótið.