Afrískur kjúklingur
m/kókósmjöli, banönum, rauðum/grænum paprikuræmum og ananas
(fyrir 4)
Hráefni:
2 msk. matarolía, til steikingar
3 pressaðir hvítlauksgeirar
2 saxaðir laukar
½ tsk. salt
5 tsk. Madras karrí
2 tsk. cuminduft
1 tsk. paprikuduft
¾ tsk. kanill
4 kjúklingabringur
4 msk. matarolía
2 msk. púðursykur
Aðferð:
1.Mýkið hvítlauk og lauk í olíu. Blandið þurra kryddinu saman við og hitið vel
með lauknum í u.þ.b. 1 mín á góðum hita.
2.Blandið 4 msk. olíu og 2 msk. púðursykri vel saman við. Látið í skál eða djúpt
fat og kælið aðeins.
3.Skerið kjúklingabringurnar í strimla
4.Léttsteikið þær á pönnu (ekki gegnelda)
5.Blandið kjúklingunum saman við kryddblönduna og látið bíða í 20 mín. eða
lengur.
Sósa:
1 dós niðursoðnir tómatar (nota vökvann)
6 msk. sojasósa
2 tsk. edik
½ tsk. salt
1 tsk. pipar
2 dósir hrein jógúrt, blandað saman við í lokinn
Aðferð:
1.Blandið öllu saman í pott þ.e. kjúklingnum og öllu sem á að fara í sósuna nema
jógúrtinni
2.Sjóðið í 15 mín. eftir að suðan kemur upp.
3.Látið jógúrtina sjóða með síðustu mínúturnar. Gæta að hún sjóði ekki of lengi.
Ofan á:
4 msk. kókósmjöl
1 banani
rauðar og grænar paprikuræmur
2 skífur af ananas
Aðferð:
1.Þurrsteikið kókósmjölið, sneiðið bananann og bætið út í kókósmjölið ásamt
paprikuræmunum.
2.Skerið ananasinn í litla bita.
3.Berið fram í fallegu djúpu fati og látið kókósblönduna og ananasinn yfir
réttinn fyrir framreiðslu.
Í hverjum skammti eru 499 hitaeiningar og ríkulegt magn af próteini og fosfór.
Berið fram með hrísgrjónum og salati.