Wok fyrir 2- 4
Kjöt að eigin vali (svínalundir, kjúklinga eða kalkúnabringur)
2 msk. maizena mjöl
3 msk. sojasósa
1/2 tsk. sykur
1 hvítlauksrif, pressað
1 bolli vatn
2 msk. olía
1 stór gulrót, skorin í renninga
1 græn paprika, skorin í renninga
1 bolli sveppir, niðurskornir
Byrja á að blanda saman sojasósu, vatni, hvítlauk og sykri í skál. Skera kjötið
í renninga, setja í blönduna og láta liggja í um hálftíma. Olíu hellt á pönnuna.
Kjötið steikt í um 2-3 mínútur, tekið af pönnunni og lagt á disk.
Næst eru gulræturnar steiktar í um 1 mínútu, restinni af grænmetinu bætt út í og
allt steikt í um 2 mínútur. Þá er kjötinu og sojasósublöndunni bætt á pönnuna og
látið sjóða með maízena mjölinu þar til sósan hefur jafnað sig. Berið fram með
heimabökuðu eða aðkeyptu brauði, núðlum eða hrísgrjónum, og mögulega rauðvíni að
hætti hússins.