Spaghetti Bolognese

600 gr nautahakk
2 stk laukur saxaður
2 stk hvítlauksgeirar pressaðir eða fíntsaxaðir
3 msk olía eða smjör
1 stk gulrót hökkuð eða fíntsöxuð
1 stk sellerí fíntsaxað eða hakkað
500 gr dósatómatar með safa, grófsaxaðir
2-3 dl kjötsoð
salt, pipar, timian, oregano og steinselja.

Kraumið lauk og hvítlauk í olíu eða smjöri smástund ásamt kjöthakkinu. Kjötið á að brúnast og losna vel í sundur. Bætið grænmeti, tómötum og kjötsoði saman við. Kryddið hæfilega og látið sjóða loklaust þar til sósan fer að þykkna. Hrærið af og til í sósunni.