Steiktur nautavöðvi (roast beef)

800 g nautainnanlærisvöðvi
6 stk tímían, nýtt, kvistir
4 msk ólífuolía
2½ dl hrísgrjón, frá Uncle Ben´s
2 msk kryddblanda, Montreal steikarkrydd frá McCormick
2 stk paprika, rauð
2 stk tómatar
1 stk blaðsalat, höfuð
1 stk paprika, græn
karrísósa, frá Uncle Ben´s

Skerið vöðvann í tvennt eftir endilöngu og notið annan helminginn. Kryddið hann með kryddblöndu og salti og stráið á hann timjanblöðum. Hitið olíuna vel á pönnu og brúnið kjötið vel allt um kring til að loka því. Færið það síðan yfir í ofnskúffu og steikið það í 180°C heitum ofni í 45 mínútur. Þá ætti vöðvinn að vera miðlungssteiktur. Ef notaður er kjötmælir er honum stungið í miðjan vöðvann sem er tilbúinn þegar mælirinn sýnir 57°C.

Framreiðsla
Berið kjötið t.d. fram með kartöflusalati, súrsuðum gúrkum, sinnepi og sósum af ýmsu tagi.