Ofnsteikt Texas-rif

3 lengjur af svínarifjum (baby back), um 1,6-2 kg
2 tsk gul mustarðskorn eða sinnepsduft
2 tsk piparkorn (eða nýmalaður pipar)
1 tsk oregano
1 tsk salt
chilipipar á hnífsoddi
3 msk sykur
150 ml grillsósa (t.d. Hunts Original Barbecue Sauce)

Ofninn hitaður í 220 gráður. Mustarðskornin og piparkornin steytt eða möluð,
sett í skál og oregano, salti, chilipipar og sykri hrært saman við. Að
síðustu er grillsósunni hrært saman við. Rifjalengjurnar penslaðar vel með
sósunni á báðum hliðum og síðan raðað á grind sem sett er yfir ofnskúffu eða
steikarfat. Kúpta hliðin á að snúa upp. Sett í ofninn og steikt í um
hálftíma. Þá er rifjunum snúið og þau steikt í um 10 mínútur í viðbót (á
þessu stigi er gott að hella dálitlu vatni í ofnskúffuna, annars gæti feiti
og sósa sem hefur lekið niður í hana farið að brenna og reykur að myndast).
Síðan er ofnskúffan tekin út og grillið í ofninum hitað. Rifjunum snúið
aftur, þannig að kúpta hliðin snúi upp, þau pensluð með afganginum af
sósunni, ef einhver er, annars með ögn meiri grillsósu úr flösku, og grilluð
ofarlega í ofni þangað til þau eru farin að brúnast töluvert og brenna ögn á
jöðrunum. Tekin út, skorin í stykki með 1-3 rifjum í hverju, og borin fram,
t.d. með soðnum hrísgrjónum, salati og sósu.