Nauta rib-eye red chili með kryddsmjöri og grilluðu grænmeti
fyrir 4

4 x 200 g nauta rib-eye-steikur (fást í Kjötkompaníi)

 

KRYDDSMJÖR

200 g smjör (við stofuhita)

½ tsk. saxað ferskt chili

1 tsk. saxaður hvítlaukur

1 dl saxað ferskt kóríander

½ dl söxuð steinselja

Nýmalaður pipar

Blandið öllu saman í skál og hrærið saman með gaffli. Kælið í ísskáp þar til notað.

 

GRILLAÐ GRÆNMETI

4 stk. meðalstórar kartöflur

1 stk. sæt kartafla

6 stk. vorlaukur

20 stk. perlulaukur

1 stk. hvítlaukur

½ stk. ferskt rautt chili

1½ dl jómfrúarolía

Sjávarsalt og nýmalaður pipar

Skerið kartöflur í fjóra báta, afhýðið sætu kartöfluna og skerið í 3 sentímetra þykkar sneiðar, afhýðið hvítlauk og merjið aðeins undir hnífsblaði. Saxið chili gróft og afhýðið perlulauk. Setjið allt saman í álform og kryddið vel með salti og pipar. Grillið á miðlungshita í 40 mínútur.

Passið að kjötið hafi staðið í stofuhita í minnst 2 klst. áður en það er grillað. Hitið grillið vel, skellið kjöti á mjög heitt grillið og grillið í mínútu á hvorri hlið, en færið þá kjötið á annan helming grillsins og slökkvið þar undir, en haldið miðlungshita á grillinu hinum megin og grillið í 3 mínútur á hvorri hlið. Látið kjötið standa í nokkrar mínútur og berið fram með Ora grillsósum.