Laukfyllt grillsteik

1 kg góður nautavöðvi
sítrónupipar eða svartur pipar eftir smekk

Fylling:
2 tsk. Dijon sinnep
1 stór rauðlaukur
2 hvítlauksrif
2 msk. smjör
1 tsk. sítrónupipar
1 tsk. hlynsíróp

Skerið nautavöðvann í 6-8 þykkar sneiðar og skerið "vasa" inn í hverja sneið þ.e. skerið kjötsneiðina í sundur í miðju en skiljið kantana eftir lokaða á þrjá vegu. Smyrjið sinnepi inn í hverja sneið. Skerið rauðlaukinn í þunnar sneiðar og mýkið hann í smjörinu, bætið hvítlauknum á pönnuna og látið krauma við frekar vægan hita þar til laukurinn fer að mýkjast. Kryddið með sítrónupipar og hlynsírópi. Setjið laukblönduna inn í kjötsneiðarnar og lokið fyrir með trépinna eða kjötnál. Kryddið sneiðarnar vel með sítrónupipar og glóðarsteikið í 5-6 mínútur á hvorri hlið eða eftir smekk. Berið sneiðarnar fram með glóðarsteiktum maísstönglum, salati og kartöflum. Gott er að hafa kalda piparsósu með kjötinu.