Kreólakjötbollur

Hráefni
600 g nautahakk
1 laukur
3 msk hveiti
1 stk sterk paprika
salt og pipar

Kreólasósa:
1 laukur
1 1/2 rauð paprika
3 hvítlauksgeirar
1 dós brytjaðir tómatar
1 lárviðarlauf
1 lítil dós ananaskurl
1 tsk mólassi eða dökkur púðursykur
1 dl vatn
salt og pipar

Aðferð:
1.
Blandið lauk, hveiti og kryddi saman við hakkið og mótið bollur, um 20 stk.

2. Steikið kjötbollurnar varlega í ólífolíu þar til þær hafa brúnast á báðum hliðum.
Best er að nota skeið við að snúa þeim. Raðið bollunum í eldfast mót.

3. Útbúið sósuna: Fínt saxaður laukurinn er steiktur á pönnu í ólífuolíu þar til hann er mjúkur, smátt brytjaðri paprikunni og hvítlauknum er svo bætt út á og allt steikt í um það bil 1 mínútu, þá er öllu hinu hráefninu blandað út í og sósan látin sjóða. Smakkið sósuna til og kryddið eftir smekk.

4. Sósunni er síðan hellt yfir kjötbollurnar og rétturinn bakaður í 200 gráðu ofni í 20-25 mínútur.

Berið fram með hrísgrjónum og grænu salati.