Kjötkökur (Fyrir
fjóra
400 g nautahakk
1 ½ tsk. Salt
¼ tsk. Pipar
¼ tsk. Múskat
¼ tsk. Engifer
2 msk. Kartöflumjöl
1 ½ dl vatn eða mjólk
2 msk. smjör eða olía til steikingar
6 dl vatn
1 nautakraftsteningur
1. Best er að nota matvinnsluvél.Setjið allt í skálina fyrir utan vatn og tening
og hrærið vel saman þar til hakkið verður farskennt.
2. Búið til kjötbollur úr farsinu og mótið þær með skeið.
3. Steikið bollurnar á pönnu á öllum hliðum þar til þær eru orðnar brúnar og
fínar.
4. Bætið vatni og tening á pönnuna og látið bollurnar sjóða. Gott er að hafa
brúna sósu með bollunum. Það má nota sósu úr pakka en best er að gera hana
sjálfur.
Brún sósa
4 msk. Smjör
4 msk. Hveiti
1 lítri kjötkraftur (vatn og teningur)
1 tsk. Sojasósa
½ tsk. Salt
¼ tsk. Pipar
1. Brúnið smjörið á pönnu. Bætið hveitinu saman við og hrærið vel saman.
2. Setjið kjötkraftinn út í, lítið í einu, þannig að jafningurinn verði
kekkjalaus.
3. Látið sósuna malla í tíu mínútur.
4. Bætið sojasósunni út í og bragðbætið með salti og pipar.