Indverskir lambaafgangar

Ef lambakjöt, eins og hryggur eða læri, er í matinn og afgangur

verður er tilvalið að búa til afgangsrétt með indversku ívafi.

 

afgangur af lambakjöti

2 tsk. karrí

smjör/olía

2 dl vatn og 1 teningur

kjötkraftur

2 laukar

1 epli

1 stór gulrót

1 banani

salt og pipar

2 msk. Mango Chutney

1-2 dl rjómi

Hitið olíu með karrí og brúnið kjötið. Rífið eplið með rifjárni, skerið gulrótina í þunnar sneiðar og laukinn smátt. Setjið grænmetið út á kjötið ásamt vatni og kjötkrafti. Látið malla. Sneiðið banana niður, brúnið þá og setjið yfir réttinn.

Indverskir lambaafgangar