Úrbeinaður lambahryggur í jógúrt mareningu með portobello sósu:
 

200 ml hreynt jógúrt
1 msk hunang
2 tsk salt
2 msk rósmarin
4 stk hvítlaukur
c.a 1 dl olía


Allt er sett saman og kjötið er vellt uppúr mareningunni, látið kjötið standa í c.a 2-3 klst í kæli og svo 1-2 tíma við stofuhita áður en eldunin fer fram.
Kjötið er brúnað á pönnu og baka í ofni við 200° í c.a 10- til 15 mín en það fer eftir því hvernig steikingin á að vera.

Sósan:
c.a 2 stk portobello Sveppir
1 hvítlauksrif
½ stk hvítur laukur
þurkaðir villisveppir
1 dós Sýrður rjómi
villifondu
garðblóðberg
salt og pipar


Sveppirnir eru skornir smátt og steiktir á pönnu ásamt hvítlauk og lauk. Villisveppirnir eru settir saman við ásamt vatninu og látið aðeins sjóða niður, þá er rjómanum blandað saman við, sósan er krydduð með villifondu, blóðbergi, salt og pipar. Munið að taka blóðbegið úr sósunni svo hún verði ekki og sterk, ef vill er gott að setja smá sultu í lokinn.

Berið fram með kartöflugratíni sjá uppskrift hér