Úrbeinað fyllt lambalæri (Fyrir sex)
Með spínacous cous og jalapenjo
1 stk lambalæri
1 pk beikon
200 g spínatcos cous
1 stk egg
1 stk jalapenjo
1 stk rautt chilli
salt og pipar
Aðferð:
Úrbeinið lambalærið (eða fáið kjötiðnaðarmanninn til að gera það fyrir
ykkur). Hreinsið burt alla óæskilega fitu og sinar. Berjið kjötið létt með
kjöthamri. Leggið kjötið á álpappír (fituhliðina niður). Saltið og piprið. Raðið
beikonsneiðum yfir kjötið. Sjóðið cous cousið. Skerið jalapenjoði og
chilipiparinn fínt niður. Blandið cous cousinu, fínt skornu skornu
jalapenjopinu og cillipaparnum og egginu saman. Kryddið með salti og pipar.
Setjið fyllinguna ofan á beikonið og rúllið lambinu upp í rúllu. Bindið rúlluna
með garni. Kryddið kjötið einnig að utan með salti og pipar. Steikið kjötið á
pönnu upp úr olíu,. jafnt að utan með salti og pipar. Vefjið kjötinu inn í
álpappír og eldið inn í ofni í 20 mín. á 200°C. Takið kjötið út og látið hvíla í
10 mín í álpappírnum. Skerið kjötið í sneiiðar.