UNGVERSKT GÚLLAS

 

Gúllas er ungverskur þjóðarréttur.  Orðið gúllas mun þýða hjarðmaður á máli þarlendra og er rétturinn þróaður á sléttum Ungverjalands.  Unnt er að nota allflestar kjöttegundir í rétt þennan en í uppskriftinni sem við munum nota er svínakjöt.

Aðalgaldurinn við að búa til gúllas er að steikja lauk og kjöt við vægan hita í góða stund, þá kemur mikið og gott bragð. Síðan bætir maður vatni saman við og því grænmeti sem er við höndina, lætur síðan allt sjóða saman við vægan hita þar til grænmetið er soðið. Hér á eftir kemur góð uppskrift af gúllasi, en þið getið hæglega breytt og bætt uppskriftina eftir hentugleika og eftir því hvað þið eigið af hráefni í ísskápnum.

 

2 msk olía

1 laukur ( skorinn í tvennt og síðan í báta)

200 gr svínagúllas

3 dl vatn

1 tsk svínakraftur ( eða annar kraftur)

1 dl tómatar úr dós

1 tsk baselíkum

1 tsk paprika

½ tsk hvítur pipar

3 kartöflur

1 lítil gulrófa

1 dl mjólk

maissenamjöl ef þið viljið þykkja réttinn
 

AÐFERÐ

Létt steikið lauk upp úr olíu við vægan hita þar til hann er mjúkur,  bætið þá kjöti saman við og þá vatni og tilheyrandi kryddum. Látið réttinn sjóða við vægan hita smá stund, bætið þá grænmeti og mjólk saman við og sjóðið áfram í 10 mínútur, þykkið réttinn með maissenamjöli. Berið réttinn fram með soðnum hrísgrjónum og grófu brauði.