Tómatkanelchili Nautagúllas

olía
1 laukur, gróft saxaður
600 gr nautagúllas
1 stór rauð paprika, gróft söxuð
1 stór græn paprika, gróft söxuð
ca. 1/2 poki gulrætur, skornar í bita
1/2 tsk piri-piri eða chili
1 tsk ósætt kakó
3/4 tsk kanel
salt
2 dósir niðursoðnir tómatar
1/2 dós sýrður rjómi

Laukurinn er steiktur í olíunni þar til glær. Gúllasi bætt út í og brúnað vel. Þá er bætti við kryddi, niðursoðnum tómötum og grænmeti og látið malla þar til kjötið er meyrt. Að lokum er sýrða rjómanum hrært saman við.

Ég bar fram pasta með réttinum. Sósan er mikil og því alveg hægt að nota meira kjöt og grænmeti en ég gerði.