Þjóðhátíðarlundi
fyrir 4
6 stk lundar
úrbeinið lundana og setjið olíu á pönnu þar sem hún er látin hitna vel. Á meðan
olían hitnar setjið þá út á hana ferskt timjan, hvítlauk og bláber sem gefur
henni dálítið villibráðarbragð.
Steikið bringurnar á sjóðheitri pönnunni í 15 sek. á hvorri hlið og takið síðan
af og látið standa í stutta stund áður en rétturinn er borinn á borð því þannit
jafnar kjötið sig og bringan verður fallega rauð að miðju.
Berið fram með glænýjum kartöflum sem skornar eru til helminga endilangt og
kryddaðar með Maldin-salti og þurrkuðu timjan og rósmaríni og velt upp úr olíu.
Gott er að setja kartöflurnar í eldfast mót og skella þeim í ofninn á 180 gráður
og baka í 20 - 30 mín. eða þar til þær eru tilbúnar.