Svindl hreindýrabollur
500 g hakk á hagstæðu verði
1 dl mjólk
1 egg
4 msk brauðrasp (úr gamla, þurrkaða franskbrauðinu)
1-2 msk hveiti
Nóg af kryddi sem til er í skápunum, einhverskonar villikrydd væri best eða nóg
af pipar, salti, timjan og kjötkrafti eða soyasósu
Öllu innihaldinu er blandað saman þar til farsið er orðið hæfilega þykkt. Þá eru
búnar til litlar bollur úr farsinu sem bæta má út í annaðhvort mjólk eða hveiti
eftir áferð.
Bollurnar skal síðan steikja við meðalhita í smjöri og bera fram með sultu
og/eða sósu.