Svínasíða með puru – Ribbensteg på dansk

Svona gerum við er við steikjum ribbensteg…
(Fyrir 5)

Steikin

1. Skerið í fituna ofan á rifjasteikinni alveg niður í kjöt með 1½ cm millibili, þó án þess að rista í kjötið sjálft. Finnið til ofnfast fat sem er ekki mikið stærra en steikin. Steikin er sett ókrydduð og öfug á fatið (með fituna niður) með u.þ.b. 2cm af vatni. Fatið er sett í 180 gráðu heitan ofn í 15 mín. Þetta er gert til að fitan nái að drekka í sig vökva svo að puran verði stökk við lokasteikingu.

2. Þá er steikin tekin úr ofninum og sett á bretti, henni er snúið við og grófu salti núið á puruna og í skurðina. Síðan er gott að setja gróft skorinn lauk, epli og sveskjur í ofnfatið. Steikin er svo lögð á og hálfum líter af vatni hellt í fatið. Svörtum pipar er stráð yfir og fatið sett í ofnin. Steikingartími er um 1 klukkustund á kílóið eða þegar
kjarnhiti hefur náð 70 gráðum.

3. Steikin er tekin úr ofninum og hitinn er færður upp í 230 gráður. Soðið er sigtað í pott og síðan er steikin sett aftur inn í heitan ofninn og látin vera þar til að puran verður stökk og byrjar að “poppa”. Ekki er mælt til að kjarnhitinn fari yfir 85gráður. Sósan Á meðan puran er að verða stökk er sósan undirbúin með því að setja í pottinn um þrjár matskeiðar þykkni og svo er hún pipruð og söltuð eftir smekk. Einnig er gott að setja smá rauðvín og matarlit til að hafa hana ekta danska.

Rauðkál
Saxið kálið og steikið það í potti með smjöri. Bætið síðan við edikinu þegar kálið hefur linast og hækkið í hæsta hita í 3-5 mín. Rifsberjasaftin er sett í pottinn, hitinn lækkaður og þetta látið malla undir loki í u.þ.b. 1 klst. Rauðkálið er bragðað og saltað og sykrað eftir smekk.

Sykurbrúnar kartöflur
Bræðið sykur á pönnu þar til að hann er orðinn ljósbrúnn. Bætið svo smjöri á pönnuna og hrærið því saman við sykurinn og setjið svo kartöflurnar útí. Þið gætuð þurft að lækka hitann svo að sykurinn brúnist ekki um of. Ef hitinn er of lágur þá kólnar sykurinn of mikið og sest illa á kartöflurnar. Einnig er gott að hafa með grænar baunir og súrar agúrkur.

Steikin
1,5 kg svínasíða
1-1½ msk gróft salt
2-3 lárviðarlauf
1 epli
8 sveskjur

Sósa
5 dl soð af steikinni
3 msk sósu þykkni
Rauðvín og sósulitur (má sleppa)
Salt og pipar

Rauðkál
1 kg rauðkál
25 g smjör
1dl edik
2dl rifsberjasaft
2 msk sykur
Brúnaðar kartöflur
800 gr forsoðnar kartöflur
7 msk sykur
2 msk smjör
1 msk rjómi