Svínalund með gráðosti (frá Osta og smjörsölunni)
svínalundir,
100 g Gráðaostur,
1 tsk salt pipar,
2 msk smjör,
100 g heilir sveppir, ferskir eða úr dós,
1 1/2-2 dl rjómi,
1-2 msk hveiti,
1 dós heilir tómatar (450 g),
kínversk soja,
steinselja
döðlur ca 4 stk.
Gerið gat í lundirnar með fingrunum. Stappið Gráðaostinn, dölunum ásamt salti og pipar. Og troðið í götin. Vefjið fyrir götin með sláturgarni. Saltið og piprið. Bræðið smjörið. Brúnið lundirnar lítillega á öllum hliðum. Setjið sveppina á pönnuna. Lokið henni og steikið áfram í u.þ.b. 15 mínútur við vægan hita. Hellið rjómanum yfir og sjóðið í 5 mínútur. Takið kjötið upp. Þykkið sósuna með hveitinu hrærðu út í safa af tómötunum. Látið sjóða í nokkrar mínútur. Smakkið með sojasósu, piparmixi og hvítlauksdufti. Látið tómatana á pönnuna. Stráið steinselju yfir. Berið fram á pönnunni með soðnum hrísgrjónum eða kartöflum. Tillögur um aðrar fyllingar: a) 2 hvítlauksgeirar 2 msk smjör 2 dl klippt stinselja. Pressið hvítlaukinn. Blandið saman hvítlauk smjöri og steinselju. Saltið lítið eitt. Setjið í raufarnar á lundunum. b) 75 g piparostur 2 msk fínt söxuð paprika eða pimento 2 tsk sinnep Hrærið öllu saman. Saltið og piprið eftir smekk. Setjið í raufarnar á lundunum.
Þessi er þvílíkt nammi