Svínakjötskarrí frá Martinique (Colombo de porc)

600 g svínakjöt, magurt
nýmalaður pipar
salt
2 hvítlauksgeirar, saxaðir smátt
1 chilialdin, fræhreinsað og saxað, eða chilipipar eftir smekk
1 sítróna
3 msk olía
1 blaðlaukur, lítill
1 laukur
1 msk karríduft
1/4 tsk engifer
1/4 tsk negull
1/2 tsk timjan
500 ml vatn
1 eggaldin
4 tómatar
nokkur græn salatblöð (má sleppa)

Kjötið skorið í gúllasbita, sett í skál og pipar, salti, hvítlauk, chili og
safanum úr hálfri sítrónunni hrært saman við. Látið standa smástund. Á meðan
er blaðlaukurinn hreinsaður og skorinn í bita og laukurinn skorinn í
fjórðunga. Eggaldinið afhýtt og skorið í teninga. Olían hituð á pönnu eða í
víðum potti, kjöt, laukur og blaðlaukur sett á hana og steikt við nokkuð
góðan hita þar til kjötið hefur allt tekið lit. Kryddinu blandað saman,
stráð yfir og hrært. Eggaldinbitarnir settir út í, vatninu hellt yfir og
hitað að suðu. Lokað og látið malla við hægan hita í um hálftíma; hrært öðru
hverju. Síðan er lokið tekið af, tómatarnir saxaðir og settir út í og látið
malla áfram, án loks, í um 10 mínútur. Svolitlu vatni bætt út í ef vökvinn
er nær allur gufaður upp svo sósan brenni ekki við. Salatblöðin skorin í
ræmur og sett út í og afganginum af sítrónusafanum hrært saman við. Smakkað
til með pipar, salti og e.t.v. meiri chilipipar, safinn kreistur úr
afganginum af sítrónunni og hrært saman við, og borið fram með soðnum
hrísgrjónum.