Svínakjöts-satay
600 g svínahnakki í sneiðum
ca. 150 g hnetusmjör, gjarna grófmalað (crunchy)
100 ml mild tómatchilisósa (Heinz)
3 msk sojasósa
1 msk olía
1 tsk worcestersósa (má sleppa)
safi úr 1/2 sítrónu
nýmalaður pipar
salt
200 ml ananassafi
Svínahnakkinn skorinn í 1-1 1/2 cm breiðar
ræmur. Hnetusmjör, chilisósa,
sojasósa, olía, worcestersósa, sítrónusafi, pipar og salt hrært saman í
skál, kjötið sett út í og blandað vel. Grillið í ofninum hitað. Strimlarnir
eru svo þræddir (eftir endilöngu) upp á teina og látnir vera þétt, svo ekki
sjáist nema í endana á teinunum. Lagðir á grind sem höfð er yfir steikarfati
eða ofnskúffu og afganginum af hnetusósunni smurt á þá. Ananassafanum hellt
í fatið og svo er allt saman sett í ofninn, ofarlega, og teinarnir grillaðir
í 10-12 mínútur, eða þar til þeir hafa brúnast vel og kjötið er meyrt. Snúið
nokkrum sinnum á meðan. Teinarnir eru svo teknir út og haldið heitum en
ananassafa og hnetusmjöri úr steikarfatinu hellt í pott, hitað að suðu og
hrært þar til sósan er alveg slétt. Smökkuð til og síðan er kjötið borið
fram með sósunni og soðnum hrísgrjónum.