Svínakjöt í sesamfræjasósu (Puliqué)
700 g svínakjöt, t.d. svínahnakki
100 g ljós sesamfræ
3 msk olía
500 ml vatn
1 laukur, saxaður
3 vel þroskaðir tómatar, saxaðir
1 tsk kummin, steytt
1/4 tsk annattofræ, steytt (má sleppa)
nýmalaður pipar
salt
nokkrar kartöflur
Kjötið skorið í 1 cm þykkar sneiðar og þær
síðan í bita, 4-5 cm á kant.
Sesamfræið ristað á þurri pönnu þar til það er rétt farið að taka lit en
síðan tekið af hitanum. Olían hituð í þykkbotna potti og kjötið brúnað á
báðum hliðum. Vatninu hellt yfir og hitað að suðu. Sesamfræ, laukur,
tómatar, kummin, annatto, pipar og salt sett í matvinnsluvél eða blandara og
vélin látin ganga þar til laukurinn og tómatarnir eru komin í mauk. Hellt út
í pottinn, lok sett yfir og látið malla við hægan hita í um 1 klst, eða þar
til kjötið er nærri orðið meyrt. Þá eru kartöflurnar afhýddar, skornar í 1
cm þykkar sneiðar, settar út í og soðið í um 20 mínútur í viðbót. Borið fram
t.d. með tortillum.