Svikinn héri í sparibúningi

 

1 kg hakk

1-2 egg

brauðrasp

1 dl barbeque sósa

krydd

1 lauf gráðostur

1/2 hvítlauksostur (þessi kringlótti harði)

 

 

Hakk sett í skál, eggin út í og kryddið ásamt BBQ sósunni.  Þessu blandað vel saman, bætt við brauðraspi þar til blandan er ekki lengur mjög blaut.

Þessu skipt í tvennt og búnar til lengjur úr báðum (svona eins og breið en flöt brauð).

Önnur lengjan sett í ofnskúffu og gerður "skurður" eftir henni endilangri, en þó ekki alveg út á enda báðum megin.

Osturinn settur í litlum bitum í skurðinn og að lokum er hin lengjan sett ofaná allt saman.  Passa uppá að ekki sjáist í ostinn og klessa þessu vel saman.

Nú á að vera til svona brauðlaga svikinn héri með ostafyllingu.

"Hérinn" penslaður með BBQ sósu jafnvel má setja beikon lengjur ofan á (eða í skurðinn).

Svo er þetta bara bakað í ofni í ca. 1 klst.