Súrsætur svínapottur frá Filippseyjum (Estofado)

3 msk olía
800 g svínakjöt, skorið í gúllasbita
6-8 hvítlauksgeirar, saxaðir
100 ml eplaedik (apple cider vinegar)
4 msk sojasósa (helst dökk en má vera venjuleg)
3 msk sykur
1 lítil dós ananas í bitum
2 lárviðarlauf
nýmalaður pipar
3-4 paprikur, gjarna mismunandi litar

Olían hituð á stórri pönnu með loki eða í víðum potti og kjötið brúnað
nokkuð vel á öllum hliðum. Hvítlauknum dreift yfir á meðan þeir eru að
brúnast og hann látinn krauma með. Ediki, sojasósu, sykri og safanum úr
ananasdósinni blandað saman og hellt yfir ásamt svolitlu vatni. Hitað að
suðu, lárviðarlaufi og pipar hrært saman við, og látið krauma undir loki við
hægan hita í um 50 mínútur, eða þar til kjötið er orðið nokkuð vel meyrt. Þá
eru paprikurnar fræhreinsaðar og skornar í fremur stóran bita. Settar út í
og svolitlu vatni bætt við ef lítill vökvi er eftir. Soðið áfram í 15-20
mínútur. Sósan smökkuð til og síðan er rétturinn borinn fram með soðnum
hrísgrjónum.