Steiktar andabringur í mangósósu
2 stórar aliandabringur, um 800 g alls
1 msk próvensölsk kryddjurtablanda (herbes de provence)
1 tsk kóríanderfræ, steytt
1 tsk nýmalaður pipar
salt
1 msk olía
1 tsk hunang
2 mangó
250 ml rauðvín
Bringurnar kryddaðar vel á öllum hliðum með
kryddjurtablöndu, kóríanderfræi,
pipar og salti. Olían hituð vel á pönnu, bringurnar settar á hana með haminn
niður og steiktar í 1-2 mínútur en þá er hitinn lækkaður og steikt áfram við
fremur hægan hita í um 8 mínútur. Hunanginu dreypt yfir kjöthliðina. Á meðan
bringurnar steikjast er mangóið steinhreinsað, afhýtt og skorið í teninga,
um 2 cm á kant. Hitinn hækkaður og síðan er bringunum snúið og þær steiktar
áfram í 2-3 mínútur við háan hita. Þá er mestallri fitunni hellt af
pönnunni. Mangóteningarnir settir á hana og steiktir í 1 mínútu. Rauðvíninu
hellt á pönnuna, hitinn lækkaður og látið sjóða áfram þar til það hefur
soðið vel niður og þykknað dálítið. Ef þið viljið hafa bringurnar vel rauðar
að innan má taka þær af pönnunni og halda þeim heitum á meðan. Þær þurfa
hvort eð er að bíða í fáeinar mínútur áður en þær eru skornar. Bornar fram
með mangósósunni, t.d. ásamt ofnsteiktum eða brúnuðum kartöflum og grænu
salati, og e.t.v. ýmsu soðnu eða steiktu grænmeti.