Steikt gæs með ávaxtafyllingu

1 villigæs, ung
1 sítróna
nýmalaður pipar
salt
50 g smjör
1 laukur, saxaður smátt
4-5 brauðsneiðar
1 grænt epli, afhýtt, kjarnhreinsað og skorið í bita
200 g þurrkaðar apríkósur, skornar í bita
3-4 plómur, steinhreinsaðar og skornar í báta (má sleppa)

Ofninn hitaður í 230 gráður. Gæsin þerruð lauslega með eldhúspappír, safinn
úr sítrónunni kreistur yfir hana og inn í skrokkin og hún krydduð vel utan
og innan með pipar og salti. Smjörið brætt á pönnu og laukurinn látinn
krauma í því við meðalhita í nokkrar mínútur, þar til hann er glær.
Brauðsneiðarnar muldar smátt - gjarna í matvinnsluvél - og hrært saman við
ásamt ávöxtunum. Kryddað með pipar og salti, gæsin fyllt með blöndunni og
opinu lokað með kjötprjónum eða tannstönglum. Gæsin er svo sett í vel smurt
steikarfat með bringuna niður og sett í ofninn í 15-20 mínútur. Þá er henni
snúið, 1 bolla af soði hellt í steikarfatið, lok sett yfir, hitinn lækkaður
í 180 gráður og steikt áfram í um 1 1/2 - 2 klst, eða þar til gæsin er meyr.
Steikarsoði ausið yfir bringuna öðru hverju.

Gæsin er svo tekin út og haldið heitri á meðan búin er til sósa -
steikarsoð, soð af innmatnum, púrtvín eða sjerrí, kannski sulta (mætti prófa
t.d. apríkósusultu, annars er berjasulta fín), svolítið dijonsinnep, kannski
væn rjómaskvetta - en ef notaður er rjómi er best að fleyta mestallri
fitunni ofan af soðinu áður en sósan er búin til, annars verður hún allt of
feit. Villibráðarkraftur ef með þarf, samanber það sem ég sagði áðan, en
reyndar væri líka mjög gott að bragðbæta með þurrkuðum villisveppum. Sósan
er svo þykkt með hveitijafningi, en best er þó að baka hana upp.

Meðlæti. Soðið rauðkál er náttúrlega klassískt, það voru einhverjar
uppskriftir af því hér um jólaleytið. Waldorfsalat, eða þá eplasalat (epli,
kál skorið í mjóar ræmur, valhnetur eða pekanhnetur, kannski smá ananas,
sýður rjómi bragðbættur með hunangi eða hlynsírópi - eða ef þú vilt ekki
sætt, þá kannski örlitlu sinnepi). Kartöflur, brúnaðar eða ofnsteiktar - svo
mætti líka hafa steinseljukartöflur (soðnar, afhýddar, settar á pönnu ásamt
smjöri, saxaðri steinselju, pipar og salti og steiktar þangað til þær eru
rétt að byrja að brúnast, hrært oft á meðan). Pönnusteiktar perur voru
verulega góðar með öndinni sem ég hafði í jólamatinn, en ef þú ert með
eplasalat væri fullmikið að hafa perur líka.