Soðin tunga með grænmeti

1 nautatunga, 2-2 1/2 kg
5-6 laukar
2 negulnaglar
6-8 blaðlaukar
2 hvítlauksgeirar
6-8 gulrætur
1 sellerístöngull
1 lárviðarlauf
1 tsk timjan
1 1/2 msk salt
1 1/2 tsk nýmalaður pipar
vatn

Tungan þvegin og burstuð og sett í stóran pott. Laukurinn afhýddur,
negulnöglunum stungið í einn þeirra og hann settur í pottinn (hinir
laukarnir geymdir). Hvítlauk, 1 gulrót, selleríi, lárviðarlaufi og timjani
bætt í pottinn og síðan svo miklu köldu vatni að fljóti 4-5 cm yfir tunguna.
Hitað að suðu og látið sjóða í 5 mínútur en þá er froða fleytt ofan af og
síðan er pottinum lokað og tungan látin malla við hægan hita í um 2 klst. Þá
er laukunum sem eftir voru bætt út í og kryddað með pipar og salti. Eftir um
20 mínútur í viðbót er blaðlauk og gulrótum bætt í pottinn og soðið í 30-40
mínútur (suðutíminn um 3 klst alls), eða þangað til tungan er vel meyr. Þá
er hún tekin upp úr, sett á bretti, látin kólna í smástund og flegin - það
ætti að vera hægt að fletta húðinni af. Sett aftur í pottinn til að hita
hana og síðan færð upp á hitað fat og grænmetinu raðað í kring. Borin fram
með soðnum kartöflum, sinnepi og rifinni piparrót.

(Svo má líka sleppa mestöllu grænmetinu, flá tunguna, skera hana í þykkar
sneiðar eða bita og sjóða þær í nokkrar mínútur í góðri ítalskri tómatsósu
með kryddjurtum, hvítlauk og ólífum.)