Snöggsteikt nauta rib eye-steik með ristuðu grænmeti, bakaðri kartöflu og truffluolíu.

Hráefni:

300 g nauta rib eye-steik

Olía til steikingar

Maldon-salt

Nýmulinn svartur pipar

Truffluolía

Grænmeti:

Portobelló-sveppir

Míni-aspas

Rauðlaukur

Míni-mais

Rauð paprika

Bökuð kartafla

Sýrður rjómi með graslauk ( í kartöfluna)

Aðferð:

Hitið ofninn í 180 gráður og bakið bökunarkartöfluna í 50 til 60 mínútur. Þerrið á meðan kjötið af öllum kjötsafa og látið það ná stofuhita á meðan grænmetið er skorið í jafnstóra bita. Hitið pönnuna vel með olíu og snöggsteikið rib eyesteikina í 3 mín. á hvorri hlið en takið af rétt um það leyti sem steikin byrjar að svitna í gegnum steikarskorpuna, leyfið steikinni að hvíla í þann tíma sem það tekur að steikja grænmetið upp úr olíu og kryddið með salti og pipar. Nú er allt klárt! Setjið steikina á disk ásamt grænmeti og bakaðri kartöflu með sýrðum rjóma í og teskeið, hellið truffluolíu yfir steikina og kryddið með maldonsalti og nýmuldum svörtum pipar. Til að gera gott betra þá er hægt að grilla steikina á kola- eða gasgrilli