Sinnepskrydduð kalkúnabringa
1 lítil kalkúnabringa, um 750 g
2 msk dijonsinnep
1 msk rifsberjahlaup eða önnur sulta
1 msk balsamedik
1 msk olía, og meira til að smyrja fatið
2-3 msk ferskt timjan, saxað smátt
1/2 tsk oregano
nýmalaður pipar
salt
Kalkúnabringan þerruð og e.t.v. hamflett. Allt
hitt hrært vel saman og smurt
jafnt á báðar hliðar á kalkúnabringunni og hún látin standa í kæli í a.m.k.
hálftíma. Ofninn hitaður í 215 gráður. Kalkúnabringan sett í eldfast fat,
olíuborið, og kjöthitamæli stungið í hana þar sem hún er þykkust (ekki
bráðnauðsynlegt en mjög gott). Sett í ofninn og steikt þar til hitamælirinn
sýnir 65 gráður. Það tók 35-40 mínútur hjá mér, sem var einmitt mátulegur
tími fyrir (litlu) kartöflurnar sem ég raðaði allt í kring. Þá er ofninn
opnaður og slökkt á honum en bringan látin standa í honum í smástund áður en
hún er tekin út, skorin í sneiðar og borin fram.