Rjúpubringur með pistasíuvaldorfsalati og mandarínugljáa. (fyrir 4)

8 rjúpubringur (eða einhver annar smáfugl)
1 grænt epli
100 ml majónes
4 msk flórsykur
1 límóna (safi og rifinn börkur)
100 g pistasíukjarnar
2 mandarínur
50 g sykur
100 g vatn
2 negulnaglar

Setjið majónesið í skál ásamt flórsykrinum og hrærið. Skerið eplið í ræmur og blandið saman við majónesið. Raspið límónu börkinn útí ásamt safanum úr límónunni. Setjið pistasíukjarnana út í. Skrælið mandarínurnar. Setjið sykurinn og vatnið í pott og sjóðið upp  á leginum ásamt negulnöglunum. Setjið mandarínubátana út í. Kryddið rjúpubringurnar með salti og pipar og steikið létt á pönnu í 2 mínútur á hvorri hlið.