Ribeye með sinnepi og parmesanosti (að hætti Rikku)
fyrir 4
1 tsk Ítalía ólífuolía
1 tsk vatn
1-2 skalotlaukar, saxaðir
1 tsk timían, þurrkað
1 msk græn piparkorn
3 msk Dijon sinnep
salt og pipar
30 g parmesanostur, rifinn
1 msk Ítalía ólífuolía
4 Íslandsnaut ungnautaribeye steikur
Hitið ofninn í 200°C. Hitið olíuna og vatnið á pönnu og steikið laukinn þar til
hann er mjúkur í gegn. Blandið lauknum saman við piparkornin og sinnepið og
kryddið með salti og pipar. Hækkið hitann á pönnunni og steikið kjötið í 3-4
mínútur, lækkið hitann og steikið áfram í 2-3 mínútur. Snúið steikinni við og
steikið í 6 mínútur. Raðið steikunum á ofnplötu og smyrjið með sinnepsblöndunni
og stráið parmesanosti yfir. Bakið í ofni þar til osturinn bráðnar. Berið fram
með bökuðum kartöflum með sýrðum rjóma og graslauk og góðu salati.