Pottréttur að sið brasilískra nautahirða
500 g saltkjöt
3 bollar hrísgrjón
1 rauðlaukur
2 hvítlauksgeirar
1 dós niðursoðnir tímatar
1 teningur lambakjötskraftur
3 bollar vatn
ólífuolía
salt og pipar
Saltkjötið skolað í vatni, skorið niður, gegnum steikt í potti í ólífuolíunni, saltað og piprað eftir smekk. Söxuðum hvítlauk, skornum rauðlauk og niðursoðnum tómötum bætt út í. Hrísgrjónunum er síðan bætt út í og látið malla í 2-3 mínútur Svo er þremur bollum af ísköldu vatni bætt út í ásamt lambakjötskrafti. Allt látið sjóða saman í 20 mínútur eða þar til grjónin eru orðin mjúk. Borið fram með grænum ólífum, parmesanosti, sólþurrkuðum tómötum eða salati.