Pistasíulamb í hunangssinnepshjúpi (fyrir 6 manns)
1 stk lambalæri
6 bökunarkartöflur
3 stk steinseljurætur
6 gulrætur
100 g pistasíuhnetur
100 g hunang
100 g grófkorna sinnep
2,5 dl rjómi
30 g þurrkaðir villisveppir
8 flúðasveppir
1 skarlottlaukur
2 hvítlauksgeirar
½ búnt steinselja
1 flaska rauðbeðusafi
2 glös rauðvín
1 stk kanilstöng
lambakraftur
Ferskt íslenskt timian og rósmarín

 

Gulrætur og steinseljurætur skrældar og skornar gróft niður. Því næst eru þær forsoðnar í u.þ.b. 4-5 mínútur. Setjið þær síðan í eldfastmót og leggið til hliðar. Skerið lykilbeinið í lærinu frá við hækilinn. Hrærið saman gróft sinnep og hunang, smyrjið yfir lambalærið ásamt salti og pipar. Gætið þess að nota bara helminginn  af hunangsblöndunni í fyrsta skiptið. Leggið lambalærið ofan á grænmetið í eldfasta mótinu og steikið í ofni við 160°(miðað við 45 mín á kíló). Hafið lok á mótinu síðasta korterið. Takið af og smyrjið afganginum af hunangsblöndunni yfir lambið og stráið síðan söxuðum pistasíunum yfir. Hækkið þá ofninn í 175°. Skrælið kartöflurnar, brytjið og látið krauma á pönnu. Skerið flúðasveppina og bætið á pönnuna, því næst kartöflunum og villisveppunum. Hellið rjómanum út á og setjið allt í eldfast mót. Bakið þetta í ofni í 30 – 45 mínútur um leið og lambið

 

Sósa:
Sjóðið rauðbeðssafann og rauðvínið niður um 2/3. Bætið vatni og lambakrafti útí. Þegar lambið er fulleldað er öllum safanum úr steikarmótinu, hellt saman við sósuna og beðið eftir suðu.