Páskalamb
fyrir 6

1 lambalæri
3 msk. olía
2-3 brauðsneiðar
3 hvítlauksgeirar
3 msk. rifsberjahlaup
1 msk. dijonsinnep
½ tsk. oregano
½ tsk. timjan
Salt
Pipar
4 laukar
½ kg kartöflur
3 sætar kartöflur

Hitið ofninn á 220° C. Kryddið lærið með salti og pipar. Hitið eina matskeið af olíu á stórri pönnu og brúnið lærið á öllum hliðum. Rífið brauðið niður í matvinnsluvél ásamt rifsberjahlaupi, hvítlauk, sinnepi, oregano, salti og pipar og maukið. Hellið afganginum af olíunni í ofnskúffuna, afhýðið laukinn, skerið hann í nokkuð þykkar sneiðar og raðið í miðja ofnskúffuna. Leggið lærið ofan á og smyrjið kryddmaukinu yfir. Steikið í ofni í 20-25 mínútur eða þar til lærið hefur tekið góðan lit. Breiðið álpappír yfir og steikið áfram í tæpa klukkustund. Setjið kartöfluteninga eða -báta í ofnskúffuna 25 mínútum áður en lærið er tekið út. Berið fram með sveppasósu og öðru meðlæti.