Ottoman-lambalæri
1 meðalstórt lambalæri
5 hvítlauksgeirar skornir í þunnar sneiðar
1 ½ dós hrein jógúrt
safi og rifinn börkur af einni sítrónu
3 msk. ólívuolía
3 msk. tómatpúrra
¼ tsk. chili-duft
½ tsk. allrahandaduft
Salt og nýmulinn svartur pipar Allrahanda eða „allspice“ er ekki
brúnkökukryddblandan sem stundum er kölluð þessu nafni, heldur ber af runna sem
vex á Jamaíku og
er stundum kallað Jamaíkupipar eða kryddpipar. Daginn áður: Skerið holur í lærið
og setjið hvítlaukssneiðar inn í holurnar. Setjið jógúrtina í skál og hrærið
öllu kryddinu saman við ásamt salti og pipar. Nuddið lærið vel upp úr
kryddblöndunni. Pakkið lærinu inn í plast og látið marinerast í kæli yfir nótt.
Takið kjötið út úr ísskápnum og látið það standa þar til það hefur náð
stofuhita. Stillið ofninn á 210°C og setjið lambið í ofnskúffu. Eldið lambið í
30 mín. á þessum hita eða þar til stökk húð hefur myndast. Lækkið síðan hitann
niður í 150°C og haldið áfram að elda þar til kjötmælir sýnir 70°C. Takið lærið
út úr ofninum og látið það hvílast í 15 mín., setjið stykki yfir Berið fram með
couscous, chutney og fersku salati.
