Ostakjöthleifur

2 rúnstykki
1 kg ungnautahakk
100 g beikonbitar
100 g ceddar-ostur, skorinn í teninga
2 egg
2 msk söxuð steinselja
2 msk hrísgrjón, ósoðin
1 laukur
1 rauð paprika
1 gul paprika
salt og pipar
2 msk matarolía

1. Bleytið rúnstykkin og takið innan úr þeim
2. Blandið saman hakkinu, rúnstykkjunum, beikonbitunum, ostateningnum, eggjunum, steinseljunni og hrísgrjónunum
3. Saxið laukinn og paprikuna smátt og bætið út í blönduna. Kryddið með satli og pipar.
4. Takið kjötdeigið með rökum höndum og mótið úr því laglegan hleif. Komið honum fyrir í ofnföstu móti, sem áður hefur verið smurt með matarolíu

Setjið mótið á grind á á 1. hæð í blásturofni. Stillið á blástur og grill og hafið hitann á 180 - 200°C.
Steikið í 90 til 100 mínútur.
Til tilbreytingar má nota svína- eða lamnahakk.